SKILARÉTTUR
SKIPTI
Við vonum auðvitað að þú sért fullkomlega sátt/ur við vörurnar sem þú færð sendar frá skakbudin.is. Ef varan hentar þér ekki hefur þú 14 daga skiptirétt frá útgáfudegi reiknings fyrir vörur sem keyptar eru í netverslun skakbudin.is.
Skiptiréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuðu og í upprunalegu ástandi með verðmerkingunum á. Skákbúðin (Kviksjá ehf) áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru tilbaka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.
Kvittunin þarf að fylgja með þegar vöru er skipt.
Ef varan er keypt á vefsíðunni okkar www.skakbudin.is.is er hægt að skipta vörunni í aðra vöru fyrir sömu upphæð og vörunnar sem skilað var.
Útsöluvörur sem keyptar eru á netverslun skakbudin.is fæst hvorki skilað né skipt.
Þegar skipta á vöru sem keypt er innan við 14 daga fyrir upphaf útsölu á að miða við verð vörunnar á útsölunni en ekki upphaflegt verð. Þetta á þó ekki við um þegar vara er keypt í desember en í þeim tilfellum hefur viðskiptavinur frest til 31.desember til þess að skipta vörunni á fullu verði í aðra vöru eða inneignarnótu.
Ef skipta á vöru með póstsendingu skal hún send á eftir farandi heimilisfang:
Kviksjá ehf
Smyrlaheiði 18
810 Hveragerði
Ef vöru er skipt í gegnum póstsendingu ber kaupandi allan kostnað af flutningsgjöldum (kvittun fyrir vörukaupum þarf í öllum tilvikum að fylgja með).
Ekki er hægt að skipta vörum á lokaútsölu nema varan sé gölluð eða þú hefur fengið senda ranga vöru.
Ef pakkinn sem þú sendir til okkar tilbaka skilar sér ekki, munum við biðja þig um að sýna fram á að þú hafir sent hann með því að sýna okkur kvittun frá póstinum. Ef þú getur ekki framvísað kvittuninni áskiljum við okkur rétt til þess að neita að skipta vörunni.
ENDURGREIÐSLA
Ef varan er keypt í gegnum netið getur kaupandi hætt við kaupin í 14 daga frá afhendingu vörunnar og fengið endurgreitt.
Skilaréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuð og í upprunalegu ástandi með verðmerkingunum á. Skákbúðin (Kviksjá ehf) áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru tilbaka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt.
Þegar þú sendir vöruna tilbaka haltu þá upp á kvittunina fyrir sendingunni sem sönnun fyrir því að þú hafir sent hana af stað.
Ef varan sem þú skilar mætir þeim skilyrðum sem þarf að uppfylla til þess að fá endurgreiðslu munt þú fá staðfestingu í tölvupósti á því að þú eigir rétt á endurgreiðslu.
Það getur tekið allt að 14 daga að fá endurgreitt frá deginum sem þú færð staðfestingartölvupóstinn.
Við endurgreiðum yfirleitt á sama hátt og þú greiddir fyrir pöntunina upphaflega.
Þegar skila á vöru sem keypt er innan við 14 daga fyrir upphaf útsölu á að miða við verð vörunnar á útsölunni en ekki upphaflegt verð. Þetta á þó ekki við um þegar vara er keypt í desember en í þeim tilfellum hefur viðskiptavinur frest til 31.desember til þess að skila vörunni á fullu verði.
Ekki er hægt að skila vörum á útsölu nema að varan sé gölluð eða ef röng vara hefur verið send.
GÖLLUÐ VARA EÐA RÖNG VARA Í PÖNTUN
Ef þú færð senda gallaða vöru eða ranga pöntun, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á skakbudin@skakbudin.is með upplýsingum um pöntunarnúmer og nafn vörunnar sem um ræðir. Ef varan er gölluð sendu okkur þá nákvæma lýsingu og mynd af gallanum. Við munum í framhaldinu kanna málið og hafa svo samband við þig í tölvupósti um hver næstu skref verða.
Ef vara er á einhvern hátt gölluð eða kaupandi fær senda ranga vöru endurgreiðir Skákbúðin (Kviksjá ehf) sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru, með því skilyrði að varan sé send á lægsta sendingargjaldi og nótan fyrir sendingunni fylgi með.
Ef ekki er til ný vara í stað gallaðrar/rangrar vöru og ekki er hægt að bæta vöruna fæst varan endurgreidd.